15.03.2010 14:46:28 / danni
Að helginni afstaðinni.
Við Stína höfum um árabil átt svona Gunna. Gunni er lítið útvarpstæki,gjarnan rafhlöðuknúið,sem hægt er að flytja með sér og hlusta á dánarfregnir og jarðarfarir og veðrið og svona.Gunnarnir okkar Stínu heita eftir hinum eina sanna Gunna,( Ragnarssyni),en hann fann upp að nota svona Gunna.
Svo höndlaði ég nýjan Gunna fyrir helgina,og lagði hinn gamla til hvílu.Setti upp hillu í eldhúsinu undir Gunnann. ( Þessi hilla var á sínum tíma smíðuð á smíðaverkstæði S.Ölvers).
Svo átti ég frí á laugardaginn.Tendraði á nýja eldhúsgunnanum,þegar ég drattaðist framúr,og naut vandaðrar dagskrár.Þarna mátti ma heyra fréttir,píkupopp,auglýsingar og viðtöl.
Viðtalið sem ég staldraði við,og vil gera að höfuðmáli færslunnar,fjallaði um fegrunarskurðaðgerðir.
Upp var dreginn,úr fitusogsorgíu sinni,Kjell nokkur Olav Sceinepapir,plastískur,( og vonandi ekki spastískur),skurðlæknir.
Kjell Olav sagði að vorin væru sérstök gósentíð fyrir mann í hans fagi.
Vart hefði sól á lofti hækkað er kellingar pöntuðu tíma í fitusog,flutning flesks af lærum,gjarna til stækkunar og stinningar brjósta.
Allt til að líta betur út í bikiníinu.
En tvennt er sem dr. Kjell Olav kemur á óvart nú í ár!
Annað er að æ fleiri kallar sækja til hans.Gjarna kallar á aldur við undirritaðan,sem vilja fá sogið burt hið leiða síðuspik,eða fjarlægð kallabrjóstin.
Hitt er sívaxandi ásókn kvenna að fá lagfærða " kjönnsleppene".
Kjönnslepper eru það sem kallað hefur verið á ástkæra ylhýra skapabarmar.
Nú vita flestir betur upplýstir lesendur pistilsins að skapabarmar eru jafn ólíkir og þeir eru margir.
Og til upplýsingar þeim sem ekki eru svo voðalega upplýstir um efnið,þá finnast bæði innri og ytri fyrrnefndir.
Innri eru gjarna hrukkóttir og slapandi,meðan hinir ytri eru svona stinnari og öðruvísi á litinn.
En þetta vita nú auðvitað allir.
En nú hafa norskar konur fattað að það má fá dr Kjell Olav og kollega hans til að laga aflagaðar pussur.
Samkvæmt viðtalinu telja norskar konur að aflöguð pussa,sem virkilega þarf á aðgerð að halda,sé pussa þar sem innri barmarnir slapa útfyrir þá ytri.
Að þeirra áliti lítur þá píkan út,fyrir þann sem td hefur hugsað sér að sleikja smá,eins og opin dós með niðursoðnum túnfisk í olíu.
Og hver hefur hugsað sér að sleikja túnfisk í olíu?
Og ef allar pussur verð smátt og smátt alveg eins?
Hver verður þá spennan að draga naríurnar af einni píku.
Og hvað verður þá,(Svo ég vitni í Svan frænda minn).
Um stútkuntu með statíf fyrir punginn,og áhorfendapall fyrir þrjá?
»
04.03.2010 16:53:02 / danni
Sælt veri fólkið.
Hinn landskunni hagyrðingur,spaugari og bóndi,Halldór Kr Smaack,kom að máli við svilkonu sína Jónínu Kr Sveinsdóttur og bað hana gerast milligöngukonu milli mín og hans svo hann fengi haldið úti hagyrðingaþætti sínum.
Svo sem alkunna er varð tímaritið "Bændur og búalið" gjaldþrota sl. haust.
Þar hafði Halldór haldið úti þætti sínum síðan 1947.
Fyrir orð Pálu,gef ég Halldóri orðið:
"Gvöði sé lof fyrir menn eins og hann Kristján.Ekki er maðurenn einungis fallegör.Yfir honum hvílir einhver óútskýranleg birta sem ég möndi reyna að skýra ef ég gæti skýrt birtuna yfir honum,en þar sem ég gjet ekki skýrt þessa birtu verður birtan sem yfir hönum hvílir að skýra birtuna yfir hönum".
Allir sem hafa undir höndum kvæðakver séra Jóns á Innri-Skapabörmum," Blaðstíft aftan hægra",kannast við ferskeytlöna góðu;
Nú er komið vor.Og nú er komið vor.
Núerkomið og nú erkomið
og nú er komið vor.
Og nú tísta mýsnar í meisnum.
Hebbði nú bara vantað að ég léti ekki vorferskeytlu séra Jóns eiga fyrsta orðið í þættinum!
Mörg eru tilsvör séra Jóns þekkt:
Eitt sinn vék sér að hönum Guðbrandur á Eistum í réttonum.Guðbrandi var í nöp við séra Jón því séra Jón habbði barnað tengdamóður hans er hún lá banaleguna.Tengdamóðir Guðbrands,Sesselja Kortsdóttir,habbði þótt gröð á sinni tíð. En séra Jóni saggðist svo frá síðar:
" Ég veitti henni síðustu smurninguna. En það var nú ekki aldeilis það eina sem smurði sig Ó dei!"Eitt sinn er séra Jón habbði gengið örna sinna,skaut Guðbrandur að hönum þessum framparti:
Séra Jón í svörðinn skeit
en svo er ei um allt ég veit,
eða hvað ég útá reit
uggði eða hugði.
En séra Jón svaraði að braggði:
Guðbrandur í gripinn beit
og græðgislega tuggði.
Magnús Alfreðsson í Skoru er annálaður hagyrðingur.Magnús í Skoru er sonur Alfreðs ,( Fredda ), í Rassaskoru Bengtssonar,Magnússonar beitis. Bengt afi Magga í Skoru er líka amma hans því Bengt var fyrsti transversítinn,íslenski.
Bengt vissi frá fyrstu stund að hann var kona fönguð í karlmannslíkama.
Fór að ganga með skotthúfu og svona.
Ævisaga Bengts," Hommi í sauðskinnskóm",hefur að geyma glitrandi perlur íslenskra ferskeytla.
Bengt átti kind sem var blind,sem var synd,því blinda kindin var yndisleg.
En hér er ein af ferskeytlunum hans Bengts:
Koddu til mín kelli mín
og kodda troddu kot.
Leggðu ósk þar veistu vín
er vaknar besta óskin þín
og þú veist
að kem ég eins og skot.
»
01.03.2010 16:57:19 / danni
Drottinn gæti yðvarr allra!
Svo sem komið hefir fram í fjölmiðlum,hefi ég undanfarin misseri dvalist í Vatíkaninu við vísinda og fræðistörf.
Einkum hefi ég grúskað í handrita og skjalasöfnum Páfagarðs,ef svo kynni fara að á fjörur mínar ræki áður óþekkt handrit, íslensk.
Hef ég notið,til þessa starfs styrks frá Árnastofnum,menntamálaráðuneytinu og samtökunum 78.( Þessum ágætu samtökum hefir lengi leikið hugur á að fá sönnur fyrir því að Gunnarr á Hlíðarenda og Njáll á Beggahvoli hafi verið hommarr).
Eftir vinnu hef ég svo teflt við páfann fram að háttatíma.
Er ekki að orðlengja það að ég gróf upp úr hrúgu af gömlu skeinipergamenti,notuðu ,er talið er að sé frá Pétri postula komið,áður óþekkt Njáluhandrit er ég tel einsýnt að sé skrifað árið eftir meinta Njálsbrennu.Meinta Njálsbrennu segi ég,því þessu handriti ber ekki allskostar saman við þau er áður eru þekkt.
Þessu til sönnunar birti ég hér uppritun mína á 128. kap.
.......Flosi mælt: Vér höfum fengit mikinn skaða á mönnum vorum; eru margir sárir,en sá veginn er vér myndim sízt til kjósa,ok reyndist hann 82,5 kíló með vápnum.Nú er það sét,at vér getum þá eigi með vápnum unnit.En þó munu vér nú verða at gera annat ráð fyrir oss.Eru nú tveir kostir,ok er hvárrgi góðr: sá annarr at hverfa frá,ok er þat várr bani,en hinn annarr at bera at eld ok brenna þá inni,ok er þat þó stór ábyrgð fyrir mömmu,því þat er svo ljótt at gjöra sváleiðis prakkarastrik.En þó munu vér þat til brags taka strákarr mínir;á nokkurr eld"?
En nú rísa upp Effbíæ ok menn hans er legið höfðu í launsátri handan hválsins.Hafði Effbíæ rifit annað hornit af hrútinum Gjallari ok haft með sér.Bar hann nú hornit at vörum sér ok þrumaði:" you are under arrest.Throw down your fucking weapons and step the fuck away from the fucking horses;lay on the fucking ground and put your fucking hands on your fucking heads."Að svo mæltu lagði hann frá sér Gjallarhornit.Flosi mælti: Best mun oss at gegna þessu,en er þat þó illa.En mun ek nú fyrst senda mömmu orð hversu komið er fyrir oss.Kallaði hann nú á gemling sinn er var á beit í hválinum.Skrifaði hann á horn gemlingsins eftirfarandi: mamma! Vér erum allir á leið í djeilit.Sendu oss öll Penthásblöð sem þér finnit,og biddu pabba at beila oss út.Rak hann svo gemsann af stað heim til Svínafells.Mun þetta vera fyrsta sms sem með gemsa er sent á Íslandi.Lögðu þeir síðan frá sér vápn sín og lögðust niðr.Effbíæ knúði dyra ok Njáll opnaði.Effbíæ mælti:"Hello mr Neil.We will bring you and your fucking family to a fucking safehouse,as soon as we have wrapt this fucking mess up".Varð Njáll feginn þessum málalokum ok þótti miklu huggulegri en í öðrum handritum.
Magnað,ekki satt?
»
25.02.2010 16:48:54 / danni
Sælt veri publikum.
Á leið heim frá vinnu í dag heyrði ég í útvarpinu lag með Barrý Maníló.
Sem betur fer hef ég ekki haglara í hanskahólfinu,annars hefði ég skotið mig með það sama.
Næsta lag á eftir var með Robbie fokking Vilhjálms.
Og enn og aftur sem betur fer,var ég ekki með bindi,annars hefði ég hengt mig frá baksýnisspeglinum, eða rifið mig úr sokkunum og kæft mig á þeim.
En þar sem ég veit að sokkarnir mínir eru svo daunillir að ég hefði svosem aldrei getað troðið þeim í kjaftinn,lét ég vera.
En ef þeir spila lag með Geirmundi Valtýssyni, þá geri ég bragð úr ellefta boðorðinu og drekki mér í klósettinu!
»
24.02.2010 15:10:41 / danni
Sæl í garði Guss!
Fyrir nokkru ákvað ég að að hætta öllum samskiptum við fólk í mæltu máli.
Tjái mig frekar í dansi.
( Enda stundum kallaður Dannsi,ha ha ha).
Það vita allir,auðvitað,að ég er magnaður dansari.
Fólk er að bjóða mér góðan daginn og svona.En í staðinn fyrir að svara á gamla mátann stíg ég nokkur létt spor og læt dansinn um hug minn til kveðju viðkomandi.
Hef fengið mér sokkabuxur,ballettskó og aðþrengdan bol sem ég klæðist að jafnaði.
En á dögunum lenti ég í smá vandræðum.
Fór í búð og dansaði hömlulaust fyrir afgreiðslufólk og aðra viðskiptavini,en enginn skildi hvað mig vantaði.
Síðasta eintak af Playboy, kjötbúðing,sixpakk og einn pakka af Prince!
Eru engin mörk fyrir heimsku fólks?
»
17.02.2010 14:18:11 / danni
Svona kominn í páskó!
Alveg veit ég að þið eruð komin með uppí kok af Passíusálmalestri.
Og svo er það Passíusálmur nr 51 eftir Stein.
Þessi þar sem segir : " stúlka með sægræn augu..............".
En hér hefi ég alveg einstaka lausn á þjáningum ykkar.
Frelsarinn var færður í hlekkjum
að fátækri endastöð.
Og fólk fékk sér sæti á bekkjum
í fyrstu og annarri röð.
Og það er sem við þekkjum
þau voru svo fjarska glöð.
Hamarshöggin dundu dimm
og Drottins rituð bók.
En nú var klukkan orðin fimm
og tæm á popp og kók.
Og þarna hangir hetja vor
hefur við alla sæst.
En má ekki alvegeins nota bor
og boddískrúfur næst?
»
14.02.2010 07:50:10 / danni
Gæti þín allt sem Guð sagði áður
og gefi þér helga stund.
Að vera bæði fátækur,fjáður
og þennan fyrsta fund.
En hvernig gátu heilög vé
er himinn yfir lögðu,
lítið barn og lítið fé
og loforðin ósögðu?
Sagt að þín sé stundin góð
og styrk sé hendin þín?
En beri þér mitt besta ljóð
blær, er sólin skín.
»
10.02.2010 15:11:08 / danni
Það tilkynnist yður hér með að Illuga frænda mínum og vini,og hans yndislegu Sóley hefur fæðst velsköpuð og dásamleg lítil dóttir.
Af myndum að dæma,finnst Svanhildi ömmu lífið ekki leiðinlegt þessa dagana!
um afa Jón er fátt vitað.
Hefur sennilega troðið í pípu sína og hugsað sitt.
Megi allt sem gott er í þessum heimi og hinum gæta hennar litlu frænku minnar.
»
02.02.2010 15:28:23 / danni
Skræl!
Á eyrinni heima þekktu allir alla í gamla daga.
Menn hittust á leið til og frá vinnu,buðu í nösina,ræddu um fiskerí,aflahorfur veðurfar og það nýjasta nýtt í Pólitíkinni.
Í kaffitímum skimuðu menn í hvers annars bitadósir.
Sumir drógu sveittar pönnukökur broshýrir upp meðan aðrir drógu fýldir upp skorpnaða fransarasneið með kæfu og muldruðu niður í bringuna:
- Ekki er nú skapið gott í HENNI þessa dagana.
Og blessuð Innlögnin lék í sumarljósu hári. ( Meðan enn var hár).
Kvenfólkið hnýtti á sig slæðurnar,hnepptu að sér kápunni,og fóru til að versla í Kjöti og Fiski.
Eftir að hafa látið skrifa hjá sér kaffibæti,Sparrpakka og Cerebossaltstauk,masa og mæla út hvort einhver væri ólétt,var þotið af stað heim til að brytja Ýsuna í pottinn,en nefi stungið inn í Mannabúðinni til að kaupa 1 kíló af Mannakexi til að hafa fyrir grislingana í seinnakaffinu.
Og flestir á Eyrunum báðum báru viðurnefni.
Ekki er að forkasta að td iðnaðarmenn voru flestir kenndir við iðn sína.
Nefni sem dæmi: Halli bakari,Donni málari,Geiri rafvirki,Gísli múrari,Stína, og svo síðar Solla klipp.
Svo voru þeir sem kenndir voru við staðsetningu sína í heiminum.
Td. Sæmundur " í Loga ", Pétur " í Steininum ", Diddi " í Merkisteini, Nonni " við Ána",Gísli "'i Fjörunni,Hermann skóari".
Næsti flokkur viðurnefna er sínu vandmeðfarnastur,því þar er ýmist verið að skírskota til persónueiginleika viðurnefnishafa,eða jafnvel atburða úr lífi viðkomandi.
Vil taka fram að eftirfarandi viðurnefnalisti er öngvanveginn tæmandi og ekki í stafrófsröð.
Þeir eða þau sem telja sig geta við listann bætt skal bent á Viðurnefnastofu Byggðasafsins að Hnjóti.
Skítalykt,halti,hatiss,stóri,mig,pohjomm,smjattsmatt,grúttli,ljótikallinn,veiðipumpa,fusi,herðatré,gandí,læða,brauðskítur,maríuerla,leynó,pungpressa,knékné,grátur,runk,spell.
( Skít því hér að að gamni að frá Tálknafirði koma hin skemmtilegu og vönduðu viðurnefni Addi sikkfokk,og svo einhver skólastjóri er gekk við staf og nemendur nefndu á hnyttinn hátt "skít á priki"!)
Leyfi mér að lokum að nefna úrval þeirra manna er kenndir voru,( og eru), við mæður sína og feður.
Óli Toddu,Jói og Reynir Boggu,Gísli Ólafs,Jói Lóu,Halli Aðalsteins,Elli Kristjáns,Halli Matt,Kiddi Friðþjófs.
Nefni að lokum vin minn og nágranna til margra ára. Ljúfmennið hann Halldór heitinn Jósepsson mikla gæðasál. Vandaðann mann til orðs og æðis.
Mamma hans hét Gugga en pabbi Jósep.
Og því var hann Dóri ýmist kallaður Halli Guggu eða Dóri Jobba!
Geri aðrir betur!
»
24.01.2010 07:49:28 / danni
Velkomin hingað,slöttólfarnir ykkar!
Fyrst þessi spurning: Af því ég er enskumaður enginn: Er það rétt þýðing að "Sweet Home Alabama" þýði", sæti homminn í Alabama" ?
En í dag vil ég ræða um nöfn og nafngiftir.
Svo sem alkunna er hefur Höfuðvaldið blessað mig á margvíslega vegu.
Kellingu á ég ágæta. Dætur tvær. Og furðu vekur hversu vel þær eru gerðar....................................Hummm!!!!???
Barnabörn sem eru svo vel af Guffa gerð,að það hálfa væri nóg.
Og svo hef ég nafn.
Kristján!
Sem raunar er ekki og hefur aldrei verið mikið notað.
Nema þá í gamla daga.
Þá sagði mamma gamla stundum:
- Kristján! Ertu ekki búinn að fara út með ruslið?
Og þá vissi ég að eins gott var að drulla sér út með ruslið.
Og þeir sem mig þekkja vel kalla mig Danna.
Þeir sem ekki þekkja mig vel,kalla mig gjarna Daníel.
En nú hefi ég fengið tvö ný nöfn:
Þessi tvö nöfn eru: Sumir og Enginn.
Svo ber til að þegar The Warden kekur heim frá vinnu,segur hún eftir drykklanga stund,( en hvort hvað drykklöng stund er veit ekki ég.Kannski sú stund sem tekur að slátra einum öllara).
- Sumir sjá ekki að ég var í klippingu og hreinsun!
Eða þetta klassíska:
Hún kemur heim úr klippingu og hreinsun.
Varla komin inn úr dyrunum þegar hún galar:
- Er Enginn heima?
Jú jú. Enginn er heima. Hvern andskotann ætti hann að hafa farið?
Til Bermúda?
Eða:
Sumir hafa ekki ryksugað eins og ég bað þá um! ( Sem minnir mig á að auk aukanafnanna er maður í fleirtölu,svona inn á milli).
Svo allt með öllu.
Frið er ekki að fá!
Men kjære venner!
Staa paa!
»
05.01.2010 17:00:23 / danni
Gleðilega resst!
Var að rífa niður jólaskraut,seríur,uppþornað greni,og svona drasl í í dag.
Ekki í frásögur færandi,hugsið þið.
En þá gróf ég upp námu gamalla jólakorta.
þarna voru jólakort frá pakki sem ég myndi ekki einusinni nenna að yrða á í Kringlunni,og það ekki mig.
En það sem vakti kátínu mína mesta,voru jólakort frá frænku hennar Stínu, henni Höllu.
Halla þessi er systir hans Bía heitins.
Frá Höllu fann ég gulnuð jólakort dagsett aftur til aldamótanna síðustu.
Maður Höllu heitir Óli.
Mikill ágætismaður að mér skilst. Drengur góður,og leggur öllum góðum málum lið.
Mikilúðlegur,kappsamur,skákmaður og fyrrverandi fiskmatsmaður.
Skrautfiskaræktandi!
En öll jólakort Höllu sl áratug hefjast svona:
" Elsku Hanna Stína og Danni"!
" Af okkur Óla er allt gott að frétta,nema hann er alveg að verða búinn að missa sjónina".
Þetta er svipað og ef Stína hefði sent jólakort í allar áttir í áratug sem öll byrjuðu svona:
" Elsku þið!
Gleðileg jól!
" Af okkur er allt gott að frétta nema tillinn er að detta undan Danna".
Farsælt nýtt ár!
Well,well!
Áratugur er liðinn og Óli hefur ekki alveg misst sjónina og ég ekki alveg misst tillann.
Fögnum því!
Gleðilegt nýtt ár!
»
24.12.2009 09:59:58 / danni
Aðfó.
Er í fríi í dag.
Væri búinn að kaupa jólagjafir fyrir góðu börnin,ef ég þekkti einhver.
Hef ekki notað krónu.
Hér hefir snjóað aldeilis helvítis og andskotans í nótt.
Frúin,sem átti að mæta til vinnu snemmendis í morgun afrekaði að keyra sig og bibbreiðina kylliföst hérna í innkeyrslunni.
Ekki spyrja mig.
Ég,Oddbjörn nágranni,og svo að síðustu vingjarnlegur snjómokari sveitarfélagsins eyddum dýrmætum klukkutíma þessa aðfangadagsmorguns til að moka kellinguna upp og mjaka henni til vinnu.
Ekki örvænta!
Hún er búin,as we speak,að skipta um bleiju á síðustu andspyrnuhetjunni.
Fór svo hingað inn og lagaði mér kakóbolla, ( ef leyfilegt er að kalla rommstaup og kaffibolla,kakóbolla).
Kveikti á útvarpinu.
Þar hafði einhver ljósvíkingurinn skellt á fóninn hinu margfræga og mæta lagi " Living Next Door To Alice ".
Smokie!
Og þar sem ég veit að meðal tryggra lesenda síðu þessarar leynast dyggir Smokieaðdáendur hefi ég nú notað naglakulið vel og snarað textanum yfir á íslensku.
Og meina sem jólagjöf til ykkar allra.
Ef einhverjum skildi á síðari stundum detta í hug að halda því fram,að ég hafi í ræðu eða riti haldið þeirri skoðun í hámæli að Heiðar,frændi minn og vinur,Jóhannsson sé hatrammur Smokieaðdáandi.........
Hef aldrei sagt það!
Nágranni Lísu.
Silli hringdi: " Hefurðu heyrt að
í Hagkaup fáist lambakjöt meirt.
Segðu Lísu."
Ég hljóp útí glugga og gægðist smá,
en gat ekki trúað því sem ég sá,
Svona Landkrúser
í innkeyrslunni
Lísu hjá.
Ég veit ei hvert hún fer
eða hvað hún ætlar sér.
Hún puttar sig á kvöldin
yfir myndinni af mér
Og í 24 ár hef ég verið nágranni Lísu
24 ár,bara beðið eftir sjens
og beðið þess að hún gleymi gamla Jens
En nú bið ég Guð að ég gleymi þessari físu.
En svo er nú það,og það er nú svo
og ekki er meining að þreyt ykkur sko
með skoðunum mínum um Lísu.
En Lísa er farin og enn ligg ég hér
lúinn og barinn
laminn og skorinn
með öpp til her.
Ég veit ei hvert hún fer
eða hvað hún ætlar sér.
Hún puttar sig á kvöldin
yfir myndinni af mér.
Og það er nóg
að vera nágranni Lísu.
»
23.12.2009 14:28:31 / danni
Vingjarnleg jólakveðja til ykkar allra,svínin mín!
Ekki er nú jólastressinu fyrir að fara á heimili undirritaðs.
Hér er fólk í hægindum sínum , ( þegar það er ekki að hægja sér ), að skrifa jóla kort, baka Sörur,pipó og mömmó,pakka inn gjöfum og svona almennt að reyna að vera að vera jóló.
Tókum okkur til,hjónin,nú á Aðventunni,og gáfum Hjálpræðishernum alla umfram aura sem til voru á heimilinu.
Af því við erum svo góð,að við erum alltaf að hugsa um svöngu og fátæku börnin í Afiríku.
Það vildi bara svo illa til að það voru öngvir umframaurar,svo við höfðum ekkert að gefa.
Þannig að svöngu og fátæku börnin í Afiríku verða bara að halda áfram að vera svöng og fátæk.
Eitt magnaðasta vopn síðari ára er vélbyssan góða er kennd er við upphafsmann sinn Victor Kalashnikov.
Kalashnikovriffillinn.
Einn slíkur ku kosta ca 300.000 ísl kr.
Þess undarlegra er að sjá að ef maður sér mynd af halanegra frá svörtustu Afiríku er hann gjarnan með svona Kalashnikov á bringunni,og sárvantar tækifæri til að salla alla hina hottintottana niður.
En þessum sama halanegra,samkvæmt Hjálparstofnun Kirkjunnar,vantar sárlega þúsund kall til að grafa brunn?????????
Ekki gefa þessum drullusokkum neitt!!!
Jólakveðjur D.
»
18.12.2009 20:11:15 / danni
En ef þú nefnir í nóttu inn
mitt nafn er stjörnur skína
og ef ég þig í fjöru finn
er feigur axla öll mín skinn,
alla vita máttu
ástina mína.
Er bláan kyssir bára stein
og bærir lauf á grein,
andvari,um sinn.
Vita máttu
að alltaf skal ég
una við ástina þína.
En leggðu hönd að vanga
um ljósa sumarnótt.
Og ég skal með þér ganga
uns allt er kyrrt og rótt.
»
18.12.2009 15:32:21 / danni
Nú er gaman!
Veit það gleður ykkur,aðdáendur okkar hjóna,að loksins höfum við Stína komist að samkomulagi við Nivea,handáburðar- og forhúðardeild,um fjármögnun raunveruleikasjónvarps er dekkar jólahald okkar hjóna í beinni.
Hafa mörg undanfarin ár Kóka fokking Kóla , Pepsí fokking Kóla, og svo Villi- fokking - mey frá Tálknafirði borið í okkur víurnar til að ná samkomulagi.
En semsagt: Nivea hreppti hnossið!
Dagskráin byrjar 23.des,þegar Stína brytjar Skötubörðin í pottinn.
Sjálfur hrýt ég fram á eldhúsborðið en hrekk upp þegar kellingin löðrungar mig með vænu skötubarði.
( Sem minnir mig á að einusinni þegar við bjuggum heima á Patró þá seldi Læjons svona kæsta skötu fyrir jólin.
Ég,alltaf tilbúinn að styðja málefnin góð rauk til uppí verkstæði Guðjóns Hannessonar, en þar fór skötuhöndlunin fram.
Fyrrnefndur Guðjón var að vísu sofnaður milli skötubarðanna er mig bar þar að garði.
But! Who cares?
Læjonsgúrúið,Barði Sæm var að afgreiða.
" Geturðu séð af barði,Barði ", spurði ég.
Alltaf jafn hnyttinn og skemmtilegur.
Ha ha ha!)
Svo kemur Aðfó.
Þá sjáumst við hjón rífast um hvort eigi að hlusta á jólamessu eða horfa á Lost í endursýningu.
Við förum að lemja hvor annað með greni.
Svo endar raunveruleikaútsendingin með því að við förum að fleygjaNóakonfekti í klósettið.
Gleðileg jól.
»
Síður:
1 2 3 ...
19